Starfsfólk
Að starfa sem ein samstíga heild á góðum vinnustað er ekki sjálfsagt mál. Að baki liggur mikil vinna þar sem allt starfsfólk þarf á einn eða annan hátt að leggja sitt af mörkum. 1912 er afar stolt af því að hafa innan sinna raða ánægt og árangursdrifið starfsfólk sem er helgað sínum vinnustað, en reglulegar starfsánægjukannanir sýna endurtekið þessa niðurstöðu.
1912 var eitt af fyrstu fyrirtækjum landsins til að fá jafnlaunavottun og hefur verið jafnlaunavottað síðan árið 2014.
Sækja um starf hjá 1912